Aðild
Félagið heitir Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi. Eingöngu forstöðumenn eða rekstraraðilar sund- og baðstaða geta sótt um aðild. Félagsgjöld eru 12.000 kr. á ári og eru innheimt að loknum ársfundi í lok hvers árs. Við inngöngu fá félagar aðgang að innri vef síðunnar þ.s. er að finna ýmsan fróðleik s.s. fundargerðir, fræðsluefni, aðgang að spjallvef félagsins ofl.